ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Þetta var nú svo gott svar hjá hv. þingmanni að hann sparaði mér heila ræðu þar sem ég ætlaði að draga fram einmitt það atriði sem snýr að því að þjónustufyrirtækin og afleiddu verkefnin eru fyrst undir hnífinn þegar þrengir að.
Gott dæmi um það þekkjum við úr sjávarútveginum þegar hin norræna velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var við völd 2009–2013 þar sem allt gekk út á að halda sjávarútveginum í spennitreyju og í sem mestri óvissu. Þá var mjög takmörkuð nýsköpun og fjárfesting í þeim geira. Um leið og geirinn fékk fullvissu og festu um að menn gætu siglt lygnan sjó áfram jukust tækifærin mjög hratt og við sjáum fyrirtæki eins og Skagann 3X, Marel, Vöku og mörg fleiri fá gríðarlega innspýtingu af því að kjarnafyrirtækin, stóru öflugu fyrirtækin, hafa svigrúm til fjárfestinga. Það er það sem fer fyrst hjá stórfyrirtækjunum ef illa fer.