ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það tosaðist aðeins á í mér hvort ég ætti að gera hlé á umfjöllun minni um sjónarmið tveggja fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, Tómasar Inga Olrichs annars vegar og Sturlu Böðvarssonar hins vegar, til að fjalla um þessi kjarnaatriði og hvernig er að molna undan kjarnarökstuðningi fylgismanna innleiðingar orkupakkans. Ég ákvað hins vegar, eftir að hafa litið á klukkuna, að geyma þá umræðu til þess tíma að líklegra sé að fleiri séu vakandi. Ég held því áfram umfjöllun minni um sjónarmið ráðherranna þó að ég sé í engu að draga úr mikilvægi þeirra gagnvart hinu. Verður nú haldið áfram með sjónarmið fyrrverandi menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Tómasar Inga Olrichs, sem koma fram í Morgunblaðsgrein 27. apríl sl., þar sem hann fjallar um álitsgerð þeirra Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts, margrædda. Þar segir, með leyfi forseta:
„Það sem vekur athygli mína, og jafnframt vonbrigði, er að álitsgerðin skuli fjalla af nokkru tómlæti um þátttöku Íslands í Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eins og um væri að ræða þátttöku í hverri annarri alþjóðastofnun. ESB er pólitísk stofnun, tollabandalag, sem hefur lengi velkst í vafa um hvort það eigi að stefna í átt til einnar ríkisheildar eða ekki. Sú umræða er enn óútkljáð. Í nokkrum rykkjum hefur þó ESB þróast í átt til aukins miðstjórnarvalds. Orkutilskipanir ESB eru hluti af þessari þróun.“
Tómas Ingi heldur áfram, með leyfi forseta:
„Þegar fræðimenn hugleiða stöðu Íslands gagnvart umheiminum, sjálfstæði þjóðarinnar og það svigrúm sem stjórnarskrá lýðveldisins veitir eða veitir ekki til að færa valdheimildir undan stjórnvöldum, þá hlýtur að skipta máli, hvort slíkt afsal valds er til viðurkenndrar alþjóðlegrar stofnunar, ellegar til annars ríkis, eða pólitísks bræðings á borð við ESB. Evrópusambandið víkur til hliðar flestum viðmiðum sem tiltekin eru sem grundvöllur lýðræðisríkja. Það hlýtur því að vera sérstök ástæða til að vanda til athugunar á því hvort íslenska stjórnarskráin veitir yfirleitt nokkurt svigrúm til valdaafsals til annars ríkis eða fjölþjóðlegs tollabandalags, sem hagar sér að flestu leyti sem ígildi ríkis.“
Þetta er sjónarmið sem töluvert var velt upp í byrjun umræðunnar og var sérstaklega rætt við fyrri umr. þessa máls, en ég tel ástæðu til að halda því til haga við þessa umræðu og m.a. inn í þá umræðu sem snýr að afstöðu flokkanna til þessara kjarnaatriða, rökstuðningsins, en eitt þeirra er vörnin gegn þeim sjónarmiðum sem lýsa efasemdum um framsalsheimildirnar.
Úr þessum hluta greinar Tómasar Inga ætla ég að lesa eina efnisgrein til viðbótar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Reglurnar sem tollabandalagið ESB setur eru ekki algildar. ESB víkur oft frá þessum reglum af pólitískum ástæðum. Vel þekkt dæmi eru um þetta. Hef ég áður vikið að því að reglur um ríkisfjármál og viðskiptahalla hafi vikið fyrir pólitískum þrýstingi frá Þýskalandi og Frakklandi. Reglunum var hins vegar beitt af hörku gagnvart smærri ríkjum, einkum þó gegn Grikkjum og öðrum þjóðum Suður-Evrópu.“
Ástæðan fyrir því mig langaði að halda þessu sérstaklega til haga er að þegar við skoðum sviðsmyndirnar sem blasa við sem möguleikar eftir að sæstrengur hefur verið lagður eru líkindi til þess að eðli Evrópusambandsins, sem skín iðulega í gegn, verði að veruleika, þ.e. að staða smáríkja hvað varðar hagsmuni gagnvart meginsjónarmiðum Evrópusambandsins er miklu veikari en stórríkjanna þar sem undanþágur eru veittar eftir behag, á sama tíma og gengið er mjög hart fram við að fylgja yfirlýstum markmiðum þegar kemur að smáríkjum sem eiga erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér og eiga líka fáa stuðningsmenn sem eru tilbúnir til að fórna stöðu sinni gagnvart stórríkjunum innan Evrópusambandsins til þess að standa með sínum litlu félögum.