ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, ég get ekki varist þeirri hugsun að menn hafi fundið sér átyllu til að fara aðra leiðina fremur en hina. Það er kannski ekkert óeðlilegt í sjálfu sér. En ef menn gera það tel ég að þar ætti hugur að fylgja máli og þá ættu menn að tala heiðarlega fyrir því að menn vilji ganga dýpra inn í þetta samstarf en við höfum áður gert og þá hugsanlega að markmiðið sé að lokum að fara inn í Evrópusambandið.
Það sem vekur líka athygli er að það er ekkert lögmál að stjórnarandstaða þurfi endilega að vera á móti stjórn. En það voru tveir flokkar sem eru yfirlýstir Evrópusambandsflokkar og hafa verið mjög heiðarlegir í þeim málstað sínum og haldið honum á lofti, að þeir stukku strax á vagninn. Og þetta mál held ég að hafi komið inn með hraði undir þrýstingi um að það yrði afgreitt með hraði. Vegna þess að ef við skoðum ræður stjórnarliða, til að mynda hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés, um störf þingsins frá 30. apríl sl., og fleiri, tala menn þar afar skýrt um að orkuauðlindirnar eigi að vera í eigu Íslendinga og þeir séu ánægðir með þá vinnu sem verið er að vinna núna um að mynda orkustefnu Íslands og að það eigi ekki að framselja orkuna frekar undir erlend yfirráð. En núna tæpum mánuði síðar er bara eitthvað allt annað landslag uppi á borðum. Þeir menn sem töluðu svona fyrir þrem, fjórum vikum (Forseti hringir.) eru farnir að tala algerlega í hina áttina.