ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir. Já, ég held að það sé svo að þarna hafi verið stillt upp ákveðinni aðferð sem menn töldu duga til þess að ná málinu í gegn. En það sem ég skil hins vegar ekki og samsinni hv. þingmanni er af hverju menn velja að koma þessu máli í gegn á þennan hátt. Fyrir nefndina komu fjölmargir aðilar og innsendar umsagnir sem hefur verið farið yfir hér að stórum hluta í þessari umræðu eða alla vega að einhverju leyti. Tölfræðin úr því sýnir að um 70% af þeim sem sendu inn umsögn voru andvíg því að innleiða þriðja orkupakkann sökum þess að menn töldu að það þjónaði ekki hagsmunum okkar Íslendinga að gera það á þann hátt sem hér er lagt til.
Það er eitthvað sem maður staldrar við ef hv. utanríkismálanefnd tekur þá afstöðu eftir að hafa ráðgast við þá hagsmunaaðila sem komu fyrir nefndina og stór meiri hluti þeirra er andvígur, þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að best sé að gera akkúrat öfugt við það sem flestir vilja. Það er svona alger afbökun á lýðræðinu. Ofan í kaupið virðist ríkisstjórnin hafa lent í því að þurfa einhvers konar gulrót eða einhver meðöl til að nota til að sannfæra þá stjórnarliða sem enn voru óvissir.