149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:52]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er vissulega svo að allt er í heiminum hverfult og stundum hefur verið gantast með það að ekkert sé víst nema það að þurfa að greiða skatta og síðan dauðinn. Má vera að það sé rétt, alla vega er svo mikið víst að ég hef greitt skatta en er enn á lífi, óvissa er um það hins vegar hversu lengi það verður. Það er það sama með svona samninga og þegar við hreyfum okkur í umhverfi, lifandi umhverfi samninga, eins og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er og Evrópusamstarfið er, það er þróun og breytingar. Það er ekki hægt að ganga að neinu vísu. En hins vegar er hægt að ganga að leiðum sem eru líklegri en aðrar. Það er ávallt líklegra til árangurs að fara að lögum en fara ekki að lögum.

Nú er það svo að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið eru lög sem binda okkur að þjóðarétti með afar skýrar leiðbeiningar um hvernig við skulum haga málum þegar kemur að því að semja um allar breytingar sem eiga sér stað um samninginn, nýjar innleiðingar og breytingar á umhverfi. Samningurinn er skýr um það að þegar við stöndum frammi fyrir svoleiðis hlutum þá sé okkur skylt og rétt að fara eftir samningnum.

Ég verð að segja, hv. þingmaður, að hér er hins vegar valið í þetta sinn með fordæmi (Forseti hringir.) sem þó hræða, eins og í hráakjötsmálinu, að fara aftur þá vegferð að innleiða á rangan hátt (Forseti hringir.) og hætta á það að verða dæmd (Forseti hringir.) til greiðslu skaðabóta.