149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:02]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég deili þessum áhyggjum með honum. Mér finnst það mikið áhyggjuefni hversu afdráttarlaus umsögn Alþýðusambandsins er gagnvart þessu máli. Það vekur í fyrsta lagi miklar áhyggjur hvert framhaldið verður. Ef þetta gengur eftir, gerðin verði innleidd eins og ríkisstjórnin leggur upp með og málið keyrt í gegn, hvaða augum kemur Alþýðusambandið til með að líta það mál? Áhyggjurnar snúa jú réttilega að, eins og hv. þingmaður nefndi hér, hækkun á raforkuverði sem kemur til með að koma til framkvæmda. Það kemur nú strax til framkvæmda bara hvað varðar eftirlitsgjaldið á orkufyrirtækin sem mun hækka um 45%. Það mun fara út í verðlagið. Það er búið að greina frá því. Orkufyrirtækin eru búin að greina frá því.

Ofan í lífskjarasamningana þá er það náttúrlega eitur í beinum verkalýðshreyfingarinnar að hér verði hækkanir á vöru og þjónustu strax á eftir kjarasamningum. Það getur orðið til þess að samningnum yrði hreinlega sagt upp. Og meira að segja hefur, eins og ég nefndi hér áðan, komið frá Alþýðusambandinu yfirlýsing þess efnis að svo gæti farið, sem ég tek undir með hv. þingmanni að yrði mikið áfall og áfall fyrir ríkisstjórnina og fyrir okkur öll, fyrir stöðugleika í efnahagsmálum o.s.frv.

Ég tel að þarna hafi utanríkismálanefnd ekki horft nægilega í það hvaða afleiðingar (Forseti hringir.) þetta getur haft.