ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég ætla aðeins að víkja orðum að því á hvaða stað það mál er sem við erum að fjalla um. Ríkisstjórnin leggur þetta mál fram mjög seint á þinginu núna í vor. Málið kemur til utanríkismálanefndar og stoppar þar tiltölulega stutt við. Haldnir eru fundir með stuttu millibili og málið er keyrt út úr nefndinni á mjög stuttum tíma. Síðan kemur það inn í þingsal, er rætt hérna og menn taka þátt í umræðu á tveimur þingfundadögum, held ég. Síðan á bara að keyra það í gegn.
Við höfum rætt þetta mál hérna í nokkra daga, Miðflokksmenn, án þess að neinn sé í andsvörum við okkur eða hafi komið upp í sjálfstæða ræðu.
Þá spyr ég: Hverjum þjónar það að keyra þetta mál í gegn eins og meðferð þess í þinginu hefur verið? Ríkisstjórninni var í lófa lagið að leggja málið fram fyrr á þessu þingi þannig að það fengi meiri tíma, bæði í nefnd og í þingsal. Sérstaklega vil ég ítreka að hér er um þingsályktunartillögu að ræða sem fer einungis í gegnum tvær umræður. Þetta eru ekki lög sem fara í gegnum þrjár umræður.
Ég vil nota upphaf ræðu minnar til að benda á þetta, ekki síst vegna þess að hér er um mikilvægt mál að ræða. Þetta er mikilvægt mál vegna þess að hér er verið að fjalla um mikilvægar auðlindir landsins, orkuauðlindirnar, og þess þá heldur er mikilvægt að því sé gefinn tími á þinginu. Einnig vegna þess að gerðar hafa verið skoðanakannanir nokkrum sinnum um afstöðu þjóðarinnar í málinu og hafa þær leitt til þeirrar niðurstöðu að 60–80% þjóðarinnar eru alfarið á móti samþykkt þessarar þingsályktunartillögu. Jafnframt hefur komið í ljós að meiri hluti fylgismanna allra flokka er á móti málinu.
Ályktanir stjórnarflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, hafa verið gegn þessu máli. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktaði um að hann hafnaði frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Hversu mikið nákvæmar er unnt að álykta gegn nákvæmlega þessu máli?
Umsagnir í málinu. Þær eru flestar neikvæðar. Hvert er mikilvægi málsins? Ég ræddi um mikilsverða hagsmuni þjóðarinnar. Ég ætla líka að benda á að lögfræðingar sem ríkisstjórnin hefur kallað til ráðgjafar hafa margir hverjir rætt um og bent á raunverulegan stjórnskipulegan vafa í málinu.
Málið er umdeilt meðal þjóðarinnar. Við erum ekki tengd raforkumarkaði Evrópu. Það er staðreynd. EFTA-löndin hafa sýnt stöðu okkar skilning. Fulltrúi Evrópusambandsins, orkumálastjóri, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, hefur sýnt sérstöðu okkar sérstakan skilning. Leiðin til að leysa málið er vörðuð í EES-samningnum, í 102. gr., þ.e. leiðin til að fá undanþágu frá þessu. Þess þá heldur spyr maður sig: Af hverju á að keyra þetta mál í gegn með þeim hætti sem við höfum orðið vitni að hér?
Langflestar umsagnir einstaklinga, sem eru fjölmargar, eru neikvæðar. Langflestar umsagnir sveitarfélaga eða allar eru neikvæðar. Langflestar umsagnir ýmissa samtaka eru neikvæðar. Einu jákvæðu umsagnirnar, fyrir utan örfáar, eru umsagnir frá stofnunum ríkisins eða orkufyrirtækjum sem flest eru í eigu ríkisins.
Þetta er (Forseti hringir.) staðan í málinu.