149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hann spyr þeirrar spurningar hvort raunverulegi fyrirvarinn sé ekki til staðar. Ég ætla alls ekki að fullyrða það. Ég vil trúa því að þessi fyrirvari leynist einhvers staðar. Ég vil líka gefa stjórnarflokkunum fullan slaka til að benda okkur á hann, þótt seint sé, fullan slaka, og mun horfa á það jákvæðum augum ef ný uppástunga kemur um hvar þennan lagalega fyrirvara sé að finna.

En hitt er svo annað mál og miklu alvarlegra ef það á að bera það til fólks að verið sé að gera þetta með svo vönduðum hætti að þarna sé lagalegur fyrirvari fyrir hendi og síðan svo augljóst að hann haldi ekki, þá er það alvarlegt mál, eins og ég nefndi með þessa reglugerð sem er gefin út af einum hæstv. ráðherra í (Forseti hringir.) ríkisstjórn Íslands. Auðvitað er það algjörlega haldlaust.