149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:45]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir þetta. Það er mikill ágalli á þessu máli öllu hversu lítt ígrunduð umhverfisáhrifin eru. Það er alveg ljóst að þegar þessi innleiðing verður að veruleika þá er búið að leggja grunninn að næsta skrefi sem verður sæstrengurinn. Tækninni fleygir fram í þessum efnum þannig að ég held að það sé engin spurning um að svona strengur er okkur nær en margur hyggur. Þá er komin þessi verulega krafa á að selja orkuna erlendis. Þá er það náttúran sem kemur til með að gjalda fyrir það vegna þess að þá verður mikil ásókn í að byggja fleiri virkjanir, vindorkuver o.s.frv. Það er náttúran sem fyrst og fremst kemur til með að þjást, ef svo má að orði komast í þessu.

Ég vildi koma inn á eitt í þessu sambandi af því að við höfum verið að ræða sveitarfélögin og samskipti ríkis og sveitarfélaga hvað þetta varðar. Um 80% af hverju orkumannvirki eru undanþegin fasteignamati. Þetta er eitthvað sem þarf að ræða í þessu máli vegna þess að það er hugsanlegt að þetta geti brotið í bága við ríkisstyrkjahugmyndafræði Evrópusambandsins og sameiginlega Evrópska efnahagssvæðisins. Ef það yrði í rauninni ólöglegt í framhaldi af þessu þá sjáum við fram á (Forseti hringir.) umtalsverð útgjöld fyrir ríkissjóð, svo dæmi sé tekið.