149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, það er einmitt það sem kom á daginn í þessu frístandandi bréfi sem sérfræðingarnir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst skrifa utanríkisráðherra eftir að málið kom til umræðu og eftir að þeir lögðu inn meginskýrslu sína, að afstaða þeirra er óbreytt um hvaða valkostur er bestur og sömuleiðis að hinum stjórnskipulegu álitaefnum sé eingöngu verið að fresta inn í framtíðina verði sú leið farin sem ríkisstjórnin leggur til. Ég verð því að viðurkenna þegar við setjum þetta í þetta samhengi að það má öllum vera ljóst að ekkert tímahrak er í þessu máli.

Hæstv. iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, lýsti því yfir í nóvember sl. að það sé ekkert því til fyrirstöðu að málið frestist fram á haustþing 2019. Það mátti jafnvel lesa út úr orðum hennar að það væri henni að meinalausu að það frestaðist enn lengur. Ég held margra hluta vegna ættum við að flýta okkur hægt þessa dagana.