149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:35]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég verð að segja það að mér finnst þetta mjög vel rökstutt hjá fyrrverandi utanríkisráðherra Jóni Baldvini Hannibalssyni. Ég held að þetta hafi verið allt of lítið rætt í þessum sal og hvað málið varðar í heild sinni. Nú tek ég fram að ég er ekki í utanríkismálanefnd. En það hefði verið mjög áhugavert að fá frétt af því hversu mikil umræða hafi átt sér stað innan nefndarinnar um umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Við erum öll sammála um það og Miðflokkurinn er sammála um að EES-samningurinn er okkur mjög mikilvægur. Hann er það. Það er algerlega fjarstæðukennt að við í Miðflokknum viljum þann samning feigan. En hins vegar viljum við alls ekki (Forseti hringir.) að það sé verið, eins og hv. þingmaður nefndi, að keyra í gegn mál sem getur komið samningnum í uppnám.