149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:56]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og vil hrósa honum fyrir hvernig hann dró það saman í nánast einni setningu með einföldum hætti hvert markmið Evrópusambandsins er í orkumálum. Það er mjög mikilvægt að halda því til haga í þessari umræðu allri vegna þess að það er kjarni málsins.

Evrópusambandið hefur markmið. En hver eru okkar markmið? Hver eru okkar markmið sem frjáls og fullvalda þjóð? Við þurfum að móta okkur stefnu, móta okkur framtíðarstefnu um stjórnun, nýtingu og dreifingu þessarar verðmætu orku okkar, auðlindar sem færir okkur ómæld lífsgæði. Það verður að segjast eins og er að við höfum að þessu leytinu til byrjað á öfugum enda. Auðvitað á að byrja á því að móta stefnu með þjóðinni og fara síðan inn í þá vegferð að kanna hvort það henti okkur að verða hluti af þessu sameiginlega markaðssvæði raforkunnar.