ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Þetta er mjög góð spurning, hv. þingmaður. Hver eru okkar markmið? Þurfum við ekki fyrst að vita hvað við viljum áður en við tökum þessi skref? Ef eitthvað er að marka ræður þeirra sem leiða nú ríkisstjórnina þá virðist vera að við ætlum að halda fullum yfirráðum. Og miðað við það að við séum með starfshóp sem er að vinna að tillögum um orkustefnu þá virðumst við ætla að vera með orkustefnu fyrir Ísland samkvæmt hagsmunum Íslands til framtíðar. Sú orkustefna getur að mínu viti illa farið saman við stefnu Evrópusambandsins þó að hana mætti kannski laga að einhverju leyti að stefnu Evrópusambandsins. En stefna Evrópusambandsins getur ekki verið okkar stefna.