149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:59]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég skynjaði á orðum hans þá áherslu sem hann lagði á slakan undirbúning við þetta mál og hversu það er í sjálfu sér illa úr garði gert. Það virðist hafa verið farið í það í nokkurri panik að leggja það fram akkúrat á þessum árstíma í stað þess að leggja það fram í haust eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Það er náttúrlega mikið búið að velta fyrir sér hvers vegna það er gert með þessum hætti og hvers vegna tekin er sú ákvörðun í miklum flýti og flaustri að leggja málið fram nú en ekki láta upphaflega áætlun um að leggja það fram í haust gilda.

Nú vitum við að málaferli eru í gangi fyrir stjórnlagadómstól í Noregi út af sama orkupakka og málið verður tekið þar fyrir 23. september næstkomandi. Ég hef velt því aðeins fyrir mér hvort menn ætli sér að keyra þennan pakka í gegn út af því að það geti verið að þessi gjörningur verði dæmdur ólöglegur í Noregi fyrir stjórnlagadómstól og stjórnarskrá Noregs er ekki ýkja frábrugðin okkar. Spurningin er þessi: Telur hv. þingmaður að þetta geti verið raunin?

Í annan stað: Hvað finnst hv. þingmanni um þá áhættu sem tekin er við að gera þetta með þeim hætti, ef búið væri að innleiða gerðina hér og síðan yrði hún dæmd ólögleg fyrir stjórnlagadómstól í Noregi? Í hvaða stöðu værum við þá?