ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er alveg ljóst í mínum huga að það er eitthvað ósagt hér.
Varðandi spurninguna, í hvaða stöðu við værum ef málaferlin í Noregi myndu tapast og við teldum okkur vera með einhverja fyrirvara, þá tel ég einboðið að við séum í þeirri stöðu að þeir fyrirvarar sem við erum að gera, sem eru ekki þeir sömu og Noregur er að gera, séu tapaðir líka þótt efnislega séu þeir aðrir vegna þess að málið tapast væntanlega á því að ekki sé hægt að gera fyrirvara yfirleitt við slíka innleiðingu. Þá erum við einfaldlega í þeirri stöðu að við höfum innleitt, eins og reyndar er búið að segja, á hefðbundinn hátt, og hv. þm. Ólafur Ísleifsson hefur farið yfir það hvað hefðbundin innleiðing þýðir með því að vitna í bók Davíðs Þórs Björgvinssonar um EES-rétt og landsrétt, og þá erum við hreinlega og einfaldlega komin á þann stað að við erum orðin hluti af innri markaði Evrópu og heyrum í einu og öllu undir allt sem kemur fram í tilskipuninni og þeim reglugerðum sem henni fylgja í þriðja orkupakkanum. Þar á eftir mun fylgja fjórði orkupakki og sá fimmti og við verðum í ennú lakari stöðu þá ef við ætlum á einhvern hátt að reyna að spyrna við fótum ef við getum það ekki nú.