ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. En þetta er staðan sem við erum í. Hér eru gögn sem sýna skýrt fram á það að fyrir u.þ.b. mánuði voru allir sammála hér í þinginu, hugsanlega að þingmönnum Viðreisnar og einhverjum þingmönnum Samfylkingar undanskildum, um að þessa leið skyldum við ekki fara. En þó hafa þingmenn Samfylkingar gert þann fyrirvara við málstað sinn sem þeir hafa verið mjög opinskáir með, þeir vilja ganga í Evrópusambandið, að þeir vilji halda yfirráðum yfir auðlindum, þeir setja þó fyrirvara við það. Það sætir því furðu að á einungis þremur til fjórum vikum geti veður skipast svo skjótt í lofti að við séum á þeim stað í dag að nú sé það stefna stjórnvalda að innleiða þennan orkupakka án nokkurra haldbærra fyrirvara.