149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:19]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og mjög athyglisvert innlegg sem hann kom með varðandi hv. þingmann Vinstri grænna, Kolbein Óttarsson Proppé, hvernig hann skipti rækilega um skoðun og það tók hann ekki nema einn mánuð, sem er kannski bara nýtt met í þessu frá fyrri yfirlýsingum, þar sem hann lýsti því yfir að hann teldi mjög nauðsynlegt að við nýttum orkuna okkar hér innan lands og seldum hana ekki í gegnum sæstreng.

En svona geta stjórnmálin verið einkennileg og auðvitað eru sinnaskipti margra hér í stjórnarliðinu og þeirra sem styðja þessa tillögu mjög sérkennileg. Ég tek undir það með hv. þingmanni þegar hann varpaði fram þeirri spurningu hvort það væri eitthvað sem hv. þingmenn, stjórnarliðar, vissu sem við vissum ekki.

En það sem ég vildi koma að varðandi ræðu hv. þingmanns, og bæta aðeins við hana — ég hjó eftir því að formaður Framsóknarflokksins var með yfirlýsingu rétt í kringum páska. Mig langar að lesa hana upp, með leyfi forseta:

„Segja má að umræður um orkupakkann séu hatrammar. Er það að mörgu leyti skiljanlegt enda um eitt af fjöreggjum íslensku þjóðarinnar að ræða og líklega sú auðlind sem á eftir að skipta mestu máli fyrir lífsgæði komandi kynslóða. Það er því mikilvægt að leitað sé sáttar og niðurstöðu sem almenningur trúir og treystir að gæti hagsmuna þjóðarinnar í bráð og lengd.“

Hvað finnst hv. þingmanni um þessa yfirlýsingu í ljósi þess sem hann nefndi í ræðunni? (Forseti hringir.) Hvar erum við stödd þegar kemur að trausti og trúverðugleika gagnvart þjóðinni þegar við horfum upp á svona yfirlýsingar (Forseti hringir.) sem, þegar upp er staðið, hafa greinilega enga meiningu?