ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað er með öllu óskiljanlegt hvernig stjórnmálamenn og stjórnarliðar geta skipt um skoðun eins og ekkert sé í svo stóru og miklu máli. Ég velti fyrir mér: Hvar endar þetta? Hvar endar þessi svo mikilvægi trúverðugleiki gagnvart stjórnmálamönnum? Hann er nú frekar slakur fyrir og hefur gengið afskaplega erfiðlega að reyna að rétta úr þeim halla, sem er verulegur.
Skrifstofustjóri Alþingis hefur einmitt sagt nú nýverið, hann er reyndur maður á þessu sviði, að lykillinn að því að efla traust Alþingis sé að stjórnmálamenn standi við það sem þeir segja. Hér eru stjórnarliðar (Forseti hringir.) að fara þveröfuga átt í þeim efnum og gera væntanlega endanlega út af við traust þjóðarinnar gagnvart Alþingi (Forseti hringir.) og störfum þess.