149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætlaði að nota seinni spurningu mína til hv. þingmanns til að spyrja hann um það sem okkur hefur verið tíðrætt um síðastliðnar ræður okkar, þ.e. um hina lagalegu fyrirvara. Mig grunar að þetta orðalag um lagalega fyrirvara hafi verið ákvörðunarástæða margra þingmanna í stjórnarliðinu. Og við erum búin að vera að leita að þessum lagalegu fyrirvörum. Staðið hefur leit yfir að lagalegu fyrirvörunum, hálfgerð dauðaleit, herra forseti, ef ég má orða það þannig.

Við höfum fimm uppástungur. Í fyrsta lagi yfirlýsingu EFTA-ríkjanna, eins góð og hún var, yfirlýsingu orkumálastjóra Evrópusambandsins, síðan lagabreytingarfrumvarp ráðherra um breytingu á orkulögum, þá orðalag í greinargerð með þingsályktunartillögunni (Forseti hringir.) og að lokum reglugerð sem ætlunin er að gefa út hér uppi í Skuggahverfi.

Hefur hv. þingmaður einhver svör við því hvar (Forseti hringir.) þennan fyrirvara er að finna?