149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:42]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir ábendingar hans. Hann vitnar í hv. þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins og orð hans um að þennan fyrirvara væri einhvers staðar að finna. En við höfum leita að honum.

Auðvitað felst það í orðunum þegar ríkisstjórnin kynnir að innleiða eigi orkutilskipunina með lagalegum fyrirvara, að það hljóti að vera einhver fyrirvari sem þau ætla að setja í lög, ný lög, það er skilningur minn, að einhver lagasetning hljóti að eiga sér stað þarna og muni eiga sér stað eða eigi eftir að eiga sér stað. Og við höfum verið að spyrja ítrekað um þetta. Hver er þessi lagalegi fyrirvari?

Lagalegi fyrirvarinn getur ekki falist í því að benda á einhverjar samræður sem hafa átt sér stað milli hæstv. utanríkisráðherra og orkumálastjóra eða einn af orkumálastjórum Evrópusambandsins; að þeir hittist og heilsist og gefi svo einhverja sameiginlega yfirlýsingu um að Ísland sé afskekkt og hæstv. utanríkisráðherra okkar hefur líklega upplýst hann um að Ísland væri eyja og hann samþykkir það, það getur ekki verið lagalegur fyrirvari, og að EFTA-ríkin, Liechtenstein og Noregur komist að þeirri niðurstöðu að hingað liggi enginn sæstrengur. Hæstv. utanríkisráðherra hefur líklega upplýst þá um að enginn sæstrengur væri yfir hafið til Íslands. Og þeir fallast á það og gefa yfirlýsingu um að það sé raunverulega þannig að ekki sé hægt að leiða rafmagn, hvorki frá né til Íslands, vegna þess að það sé enginn strengurinn. Þetta getur ekki verið lagalegur fyrirvari heldur. Og leitin stendur yfir.

Ég hef ekki tíma til að fara yfir fleiri hugmyndir. En þetta tvennt getur ekki verið lagalegur fyrirvari, (Forseti hringir.) ekki fyrir nokkurn mun.