149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:51]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir spurninguna. Hann spyr mig hvort það sé feluleikur í kringum sæstrenginn.

Ég vil nota tækifærið og halda áfram að tala um lagalega fyrirvarann vegna þess að ég var ekki búinn að klára það.

Við vorum búnir að tala um að það væru fimm möguleikar sem við hefðum fengið að heyra frá stjórnarliðum, um hvar fyrirvarann gæti verið að finna. Og við höfum leitað að honum. Við höfum verið að spyrja um hann og verið að leita að honum.

Ég held að það sé mjög mikilvægt mál hvar þessi lagalegi fyrirvari er, vegna þess að mig grunar að þegar málið var kynnt að það ætti að innleiða þetta með lagalegum fyrirvara, hafi valdið því að mjög margir þingmenn, og fólk sem hafði áhyggjur af málinu, tóku ákvörðun að fylgja málinu. Að það hafi verið svokölluð ákvörðunarástæða fyrir því að fylgja málinu. Þetta lítur sannarlega vel út þegar menn segja: Við ætlum að innleiða þetta en með lagalegum fyrirvara. Ákvörðunarástæða. Já, ég ætla að fylgja þessu. Þetta lítur vel út. Þetta er bara alveg óhætt. Þetta er bara gott mál. Þetta er hið besta mál. Þess vegna stendur yfir þessi leit að þessum lagalega fyrirvara. Það er ástæðan fyrir að við erum að leita að honum. Og við erum að óska eftir því að upplýst verði hvar hann er.

Ég átti eftir að fara yfir einn af möguleikunum, af því að ég hef smátíma; það er síðasti fimmti möguleikinn; frumvarp hæstv. ráðherra til breytinga á raforkulögum. Ef maður lítur á það frumvarp sér maður að breytingin hljóðar næstum orðrétt eins og það sem er að finna í gildandi raforkulögum, 39. gr. a. Af hverju er þá verið að setja þetta frumvarp? Er þetta hinn lagalegi fyrirvari? Ég get ekki séð það. Þetta er nú þegar í raforkulögum.