ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, ég tek undir þetta með hv. þingmanni. Það eru áhyggjur yfir því að innleiðing orkupakkans komi til með að hækka raforkuverð til heimila og fyrirtækja í landinu. Þær áhyggjur eru að sjálfsögðu byggðar á því að við innleiðingu orkupakka eitt og tvö urðu hækkanir á raforku til heimila og fyrirtækja í landinu þrátt fyrir að stjórnvöld fullyrtu að svo yrði ekki.
Ég er alveg sammála hv. þingmanni að það er fullkomlega eðlilegt að hlustað sé á þessar áhyggjur, t.d. verkalýðshreyfingarinnar. Alþýðusamband Íslands, VR og fleiri verkalýðsfélög eru andsnúin innleiðingu þessa orkupakka vegna þess að þau hafa áhyggjur af því að það muni leiða til hækkunar raforkuverðs til heimila og fyrirtækja í landinu.
Ég spyr, herra forseti: Á ekki að hlusta á þessar áhyggjur? Er ekki lágmarkskrafa að fram fari ítarleg athugun á því hvaða áhrif þetta hefur á heimilin og fyrirtækin í landinu?
Ég er sammála hv. þingmanni með það að það er ekki hægt að koma hér með einhverjar innistæðulausar yfirlýsingar, t.d. hafa þingmenn fullyrt að það sé rangt að raforkuverð til heimila og fyrirtækja hafi hækkað við innleiðingu orkupakka eitt. Það er alvarlegt mál, herra forseti, þegar þingmenn setja svona fram þegar hægt er að sýna fram á að þetta er rangt hjá þeim. Það er búið að skrifa blaðagreinar um hækkun raforkuverðs til heimila. Það er búið að sýna fram á reikninga sem sýna verulegar hækkanir upp á tugi prósenta (Forseti hringir.) við innleiðingu orkupakka eitt og tvö. Sporin hræða svo sannarlega í þessu.