149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég sé að ég hef samið stórkostlega af mér strax í byrjun þessa fyrirkomulags.

Mig langar að koma í byrjun umræðu í dag inn á þessi kjarnaatriði stuðningsmanna innleiðingar orkupakkans sem hafa verið alltumlykjandi í umræðunni og með hvaða hætti þau horfa við mér sem Miðflokksmanni, hafandi staðið í þessari umræðu síðustu daga.

Því er haldið fram að nálgun okkar efasemdarmanna um innleiðinguna, samkvæmt því verkplani sem hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. iðnaðarráðherra hafa lagt upp, sé til þess fallin að grafa undan EES-samningnum. Það er fjarri lagi. Við teljum einmitt að raungerist eitthvað af þeim áhyggjum sem við í Miðflokknum höfum verði það fyrst til þess að setja þrýsting á samninginn. Að þeim reglum og gerðum öllum og pakkanum innleiddum verði fyrst þrýstingur á hann og engin leið út úr þeirri stöðu sem menn munu mögulega finna sig í þegar þar að kemur önnur en sú að gera einmitt drastíska kröfu um endurskoðun eða uppsögn á samningnum. Það er ekki líkleg þróun mála verði málið sett í farveg hinnar sameiginlegu EES-nefndar í samræmi við 102. gr. Álitsgerð dr. Baudenbachers hefur verið flaggað sem hálfgerðri grýlu í því sambandi, það sé mikil áhætta í því fólgin að fara þessa leið. Þá er rétt að halda því til haga að staðreyndin er sú að í 15. efnislið skýrslu dr. Baudenbachers er einmitt sagt að það sé efnisaðilum máls að meinalausu að setja málið í þann farveg sem 102. gr. leiðir það í. Það er nauðsynlegt að halda því til haga að áhættan hvað varðar framtíð EES-samningsins er engu minni og jafnvel meiri verði sú leið farin sem hæstv. utanríkisráðherra vill fara í þessu máli.

Annað atriði sem er kjarnaatriðið innleiðingarsinna í þessum efnum eru meintir fyrirvarar. Ég sé að hæstv. utanríkisráðherra er kominn í salinn og það verður áhugavert að fá að eiga orðastað við hann. Ég lýsi því hér með yfir að hann fer auðvitað fram fyrir okkur Miðflokksmenn á mælendaskrá, óski hann eftir því, hvenær sem hentar.

Fyrirvararnir hafa verið æði loftkenndir, sýnist okkur. Það var auðvitað kostulegt að sjá uppákomuna sem varð hér sl. mánudag þegar stjórnarþingmenn hlupu hér um þinghúsið, leitandi að fyrirvörum eins og krakkar í páskaeggjaleit.

Það er eitt atriði til sem hefur mikið verið haldið á lofti þegar spurt hefur verið: What´s in it for us? — Afsakið, hæstv. forseti. Hvað er í þessu fyrir okkur Íslendinga? Hvað er til hagsbóta fyrir fyrirtæki og heimili landsins? Þá hefur fyrst og fremst verið vísað í að það séu mikil tækifæri sem nú opnist til að skipta um raforkusala. Fjölskyldur geti náð fram miklu hagræði í raforkuinnkaupum, allt að 2.500 kr. lækkun á mánuði eða upp í 30.000 kr. á ári í lækkaðan kostnað. En þegar betur er að gáð er það heimild sem hefur verið til staðar árum saman og hefur ekkert með innleiðingu svokallaðs þriðja orkupakka að gera.

Að enn betur athuguðu máli er með hreinum ólíkindum hversu fáir virðast nýta sér þessa heimild. Það bendir ekki til þess að dæmið sem tekið er hér til rökstuðnings um að heimili geti náð fram 30.000 kr. lækkun á ári sé raunhæft, að þetta séu rauntölurnar sem þeir sjá og fá boðnar sem sækjast eftir tilboðum í þessa veru.

Öll þessi kjarnaatriði þeirra sem eru fylgjandi innleiðingu þriðja orkupakkans á þeim grundvelli sem utanríkisráðherra hefur formað með hæstv. iðnaðarráðherra virðast veikluleg, í besta falli. Þess vegna er ánægjulegt að hæstv. utanríkisráðherra sé kominn til landsins og við fáum vonandi að eiga við hann orðastað hér á næstunni.

Ég gef mér að hæstv. ráðherra komi í ræðu á eftir og reyni að útskýra með fyllri hætti en við höfum heyrt áður með hvaða hætti (Forseti hringir.) hald verður í hinum svokölluðu fyrirvörum.