149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:23]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Fyrst af öllu gleðst ég yfir því að sjá hæstv. utanríkisráðherra og þakka honum fyrir að gefa sér tíma til að vera hérna. Það skiptir miklu máli og gæti orðið til þess að setja þetta mál í annað og betra ljós. Ég veit ekki hvort það hefur frést til útlanda en það er búið að standa yfir fundur í nokkurn tíma (Utanrrh.: Hvað segirðu?) með mjög góðum umræðum. Ég get svo sem vorkennt hæstv. utanríkisráðherra að hafa misst af þeim, þær voru innihaldsríkar og góðar.

Það er eitt lögfræðiálit sem hefur ekki verið rætt rosa mikið um í þessari umræðu, það er álit Eyjólfs Ármannssonar lögfræðings. Ég ætla rétt að vísa í það í þessari ræðu. Hann segir svo í samantekt:

„Alþingi á að hafna þriðja orkupakkanum og tilkynna það sameiginlegu EES nefndinni. Slík málsmeðferð ógnar ekki EES-samningnum og er í fullu samræmi við ákvæði hans.

Raforka er helsta náttúruauðlind Íslands og sem eyja í Norður-Atlantshafi er landið ekki hluti af innri raforkumarkaði ESB því raforkudreifikerfi Íslands er ekki tengt innri markaðinum. Íslensk stjórnvöld eiga eftir höfnun Alþingis að fara fram á það í sameiginlegu EES-nefndinni að í ákvörðun hennar komi fram að gerðir ESB um raforku og um Samstarfsstofnunina gildi ekki um Ísland.

Þetta yrði í fyrsta sinn í 25 ára sögu EES-samningsins sem stjórnskipulegur fyrirvari er nýttur og máli vísað aftur til nefndarinnar, enda í fyrsta sinn sem ætlunin er að færa helstu náttúruauðlind Íslands undir erlent eftirlit og regluverk innri raforkumarkaðar ESB, markaðar sem Ísland er ekki hluti af.“

Ég ætla að láta þetta nægja. Ég gleymdi náttúrlega að biðja forseta um leyfi til að lesa þetta, geri það hér með seint. Ég ætla að láta nægja að lesa þennan kafla upp úr þessu, því þetta er kjarninn.

Það hefur verið svolítið rætt að í EES-samningnum eru greinar, aðallega 102. gr., sem gera bókstaflega ráð fyrir því að leitað sé sáttaferlis þegar ágreiningur er uppi og þegar menn vilja skýra mál. Það þarf í sjálfu sér ekkert til þess að uppfylla það eins og þessi ágæti lögmaður rökstyður mjög vel í þessari greinargerð. Það er ekkert sem þarf til þess að fara þá leið sem hann leggur til annað en bara kjarkur. Ég veit að hæstv. utanríkisráðherra er kjarkmaður og ég veit líka að hann hlýtur að vera áhyggjufullur yfir því að meiri hluti flokksmanna hans er á móti þessum samningi eins og hann er nú fyrirliggjandi. Þetta er bara góðfúsleg uppástunga í mikilli hógværð og auðmýkt sem ég ber fram til hæstv. utanríkisráðherra en ég held að það væri bæði skynsamlegt og gott ef ráðherra myndi fresta þessu máli til hausts þannig að hægt væri að fara betur yfir það, leita breiðari sátt um það. Ég er nánast viss um að betri skilaboð gæti hæstv. ráðherra ekki haft með sér í 90 ára afmælisveislu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á morgun.

Ég gæti haldið langa tölu, og geri það eflaust á eftir, um alla þá aðila sem eru á móti þessum samningi eins og hann lítur út nú. Verkalýðshreyfingin, garðyrkjubændur, bakarar, Hagsmunasamtök heimilanna. Það er hægt að telja upp sveitarstjórnirnar, sveitarstjórn Skagafjarðar í heilu, 9:0, og fleiri sveitarstjórnir. Það er svo almenn andstaða við þetta mál eins og það er reifað, hæstv. ráðherra, og ég get gert grein fyrir því í næstu ræðu minni hversu illa þetta mál er umbúið og hversu illa það er frágengið. Það ætla ég ekki að gera núna heldur ætla ég einungis að vekja athygli hæstv. ráðherra á þessu lögfræðiáliti, þessari niðurstöðu, og hvetja hann til þess að mæta (Forseti hringir.) til veislu í Valhöll á morgun með þessi góðu skilaboð með sér.

(Forseti (SJS): Forseti veitir hv. þingmanni afturvirkt leyfi til að lesa upp skriflegan texta án samþykkis forseta.)

Takk fyrir, herra forseti.

(Forseti (SJS): En það er ekki fordæmi.)

Ég skal ekki biðja um það aftur.