149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:29]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég fagna því að hæstv. utanríkisráðherra er kominn í hús og er tilbúinn að eiga orðastað við okkur um þau áhyggjuefni sem við höfum lýst varðandi innleiðingu þessarar tilskipunar.

Ég hef haft sérstakar áhyggjur af þróun rafmagnsverðs til fyrirtækja og heimila í landinu með því að innleiða orkutilskipanir Evrópusambandsins, orkupakka eitt og orkupakka tvö og núna orkupakka þrjú.

Ég hef sýnt fram á það með gögnum að það urðu umtalsverðar hækkanir á raforkuverði til heimila og fyrirtækja í landinu við innleiðingu orkupakka eitt og tvö. Þessu hafa stjórnarþingmenn og m.a. formaður utanríkismálanefndar, hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, mótmælt og sagt að við höfum farið með rangt mál, að það hafi ekki verið neinar hækkanir.

Ég vil í fyrsta lagi spyrja hæstv. utanríkisráðherra að því: Er það viðeigandi að hv. þingmaður og formaður utanríkismálanefndar skuli rengja það að orkuverð til heimila og fyrirtækja í landinu hafi hækkað þegar maður sýnir fram á gögn, reikninga, fréttir úr dagblöðum frá 2005, sem sýna tugprósenta hækkun á rafmagni til heimila og fyrirtækja í landinu vegna innleiðingar orkupakka eitt og tvö? Ástæðan er fyrst og fremst sú að svokölluð sérkjör voru bönnuð með innleiðingu eitt og tvö. Er það ekki alveg ljóst, hæstv. ráðherra, að þarna eru hv. þingmenn að afvegaleiða umræðuna og fara hreinlega með rangt mál gagnvart almenningi? Þetta er það sem skiptir verulegu máli þegar málið er rætt, raforkuverð til heimila og fyrirtækja í landinu.

Auk þess vil ég spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að verkalýðshreyfingin í landinu hefur verulegar áhyggjur af þessu máli og einkum og sér í lagi vegna þess að raforkuverð fyrirtækja og heimila í landinu komi til með að hækka. Þetta er það sem stendur almenningi í landinu næst.

Talað hefur verið um það að þessi innleiðing skipti ekki neinu máli vegna þess að hér er ekki lagður sæstrengur og þess vegna þurfum við ekki að hafa áhyggjur af málinu og þess vegna komi raforkuverð ekki til með að hækka. En með orkupakkanum, sem er náttúrlega samansafn af reglugerðum, þá erum við að fara að innleiða tilskipun nr. 72/2009. Þar segir í f-lið 37. gr. að það sé skylda eftirlitsyfirvaldsins að tryggja að engar víxlniðurgreiðslur séu milli flutnings-, dreifingar- og afhendingarstarfsemi.

Með þessu er verið að draga úr möguleikum hins opinbera til að niðurgreiða raforku til kaldra svæða sem dæmi, þeirra sem hafa ekki hitaveitu, í matvælaframleiðslu o.s.frv.

Orkupakki þrjú er forsenda þess að sæstrengur komi. En hins vegar sjáum við það hér að þrátt fyrir að sæstrengur sé ekki kominn á að tryggja samkvæmt þessari reglugerð að það séu ekki neinar niðurgreiðslur. Ég bendi á að það er verið að niðurgreiða rafmagn til húshitunar í dag.

Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Verður óheimilt samkvæmt þessari reglugerð að niðurgreiða rafmagn til húshitunar? Það er ekki hægt að lesa annað út úr reglugerðinni. Samkvæmt orðanna hljóðan verður það óheimilt. Það mun þýða enn frekari hækkanir á rafmagni til heimila og fyrirtækja í landinu. Þetta eru réttmætar áhyggjur, hæstv. ráðherra.

Svo vil ég ítreka það sem ég sagði áðan, að fá álit ráðherra á því hvort það sé ekki áhyggjuefni fyrir stjórnvöld að verkalýðshreyfingin sé á móti þessum orkupakka, innleiðingu þessarar tilskipunar, í ljósi þess að nú er nýbúið að gera nýja (Forseti hringir.) lífskjarasamninga og þetta getur haft áhrif á hina fjölmörgu umbjóðendur þessara verkalýðsfélaga.