ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég vísaði einu sinni á heimasíðu utanríkisráðuneytisins og þá var ég að vísa til fræðimannanna, til bréfs sem þeir sendu mér.
Síðan af því að þið hlustuðuð á hvernig hann talaði um nálgun sína varðandi sæstrenginn þá ætla ég, með leyfi forseta, að lesa hér frétt frá 29. október 2015.(SDG: Ætlar þú að svara spurningunni?) „Sigmundur og Cameron stofna starfshóp um sæstreng“, er fyrirsögnin.
„Forsenda samningsins er að verð til fyrirtækja og heimila muni ekki hækka. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ákváðu að setja á fót vinnuhóp um lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands. Vinnuhópurinn á að skila skýrslu um málið innan sex mánaða. Ef ákveðið verði að leggja sæstreng þá er gert ráð fyrir að verkefnið muni taka um tíu ár í byggingu. Samkvæmt tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins er forsenda þess að sæstrengur verði lagður ef verð til heimila og fyrirtækja hækki ekki.“
Virðulegi forseti. Þetta er ekki aðili sem vill (Gripið fram í.) ekki skoða þetta. Hvort ég hafi fylgst með umræðunni í Noregi? (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) Að sjálfsögðu höfum við gert það og það er ekkert …
Virðulegi forseti. Ég hvet alla (Forseti hringir.) til að meta það sjálfir hvað hv. þingmaður sagði (Forseti hringir.) um samskiptin við David Cameron og síðan hver sannleikurinn er.