149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst var spurt um hvaða hræðsluáróður hefur verið í gangi. Ég held að það sé óhætt að segja sem svo þegar sagt er að við séum að missa stjórn á auðlindum okkar með einhverjum hætti, þegar talað er um hækkun orkuverðs og annað slíkt. Þetta er hræðsluáróður. (BirgÞ: Þetta er rétt.) Þetta er hræðsluáróður og á sér enga stoð í … (ÞorS: Nei, þetta er rétt.)

Virðulegi forseti. Ég hélt að þessir aðilar hefðu fengið einhver tækifæri til að tala hér, en þeir hafa augljóslega ekki fengið nóg og halda áfram að kalla fram í og allt í góðu með það.

Virðulegi forseti. Það sem liggur til grundvallar enn og aftur — ég ætla ekki að fara að elta ólar við skoðanir þessa lögmanns sem hv. þingmaður vísar til. Ég er búinn að fara nákvæmlega yfir þetta. Ég næ ekki að lesa á þessum sekúndum sem eftir eru t.d. áréttingu sérfræðinganna, sem ég tel að sé nokkuð sem allir ættu að lesa (Gripið fram í.) því að það er nákvæmlega það sem hv. þingmaður er að spyrja um. (ÞorS: Var ekki að spyrja um það.) Þetta er það sem liggur til grundvallar ákvörðuninni. (Forseti hringir.) Hér er samandregin árétting vegna umræðunnar, sé nákvæmlega eins núna og í fyrri umræðunni, og hún leiðréttir allt það sem hér hefur komið fram af hálfu viðkomandi þingmanns.