ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að miðað við þá áherslu sem lögð var á neytendavernd og bætta stöðu neytenda í framsögu framsögumanns utanríkismálanefndar og þá ríku áherslu sem lögð var á þau atriði í andsvörum hér fyrstu klukkustundir umræðunnar meðan einhver stuðningsmanna málsins lét enn sjá sig hér á vettvangi, þá eru þetta mjög hóflegar heimtur ef hið eiginlega atriði sem er heimilum landsins mögulega til hagsbóta að eftirlitið verði styrkt. Af því að það eina sem liggur fyrir í gögnum málsins enn sem komið er er að eftirlitsgjaldið verði hækkað. Þannig að það eina sem er í hendi er aukinn kostnaður fyrir heimili. Hitt er, og það er eins um opinberar framkvæmdir, ég veit að hæstv. ráðherra er mér sammála um það, að það er frekar á vísan að róa varðandi útgjaldahluta sparnaðartillagna en raunverulegar heimtur þegar kemur að meintum sparnaði.