ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég verð að segja að ég er forviða á því að hæstv. utanríkisráðherra byrji ræðu sína á því, þegar hann kemur og hefur loksins samræður við okkur við þessa umræðu um orkutilskipun Evrópusambandsins, að hafa uppi getgátur um áhrif erlendra aðila á umræðuna hér innan lands. Ég er forviða á svona fullyrðingum hæstv. ráðherra og mér finnst alls ekki sæma hæstv. ráðherra að vera með þessar getgátur. Að þessir aðilar hafi uppi áróður hér innan lands til að hræða íslenskan almenning er eitthvað sem ég hef aldrei heyrt fyrr en hæstv. ráðherra vogar sér að koma upp í ræðustól og halda þessu fram. Hvar hafa þessir aðilar verið, hæstv. ráðherra?
Ég ætlaði að fjalla örlítið meira um þennan lagalega fyrirvara. Mér heyrðist hæstv. ráðherra vera að benda á að þennan fyrirvara væri að finna í nefndaráliti meiri hlutans og að í honum fælust drög að reglugerð iðnaðarráðherra sem ætlunin er að undirrita, ef ég hef skilið hæstv. ráðherra rétt. Ég verð að viðurkenna að honum lá svolítið lágt rómur en ég held að ég hafi skilið það rétt að fyrirvarinn væri fólginn í útgáfu á þessari væntanlegu reglugerð hæstv. iðnaðarráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Ég hef fengið send drög að þessari reglugerð þar sem í 3. gr. kemur fram, með leyfi forseta:
„Þar sem íslenska raforkukerfið er ekki tengt raforkukerfi annars lands, með grunnvirkjum yfir landamæri, koma ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 sem varða raforkutengingar milli landa ekki til framkvæmda á Íslandi á meðan slíkri tengingu hefur ekki verið komið á.“
Er þetta, herra forseti, hinn lagalegi fyrirvari? Í reglugerð? Sem var reyndar einn af þeim möguleikum sem ég var búinn að velta upp, að þar væri hann að finna. Ef það er rétt skilið, ráðherra leiðréttir mig ef það er ekki rétt, ef þetta er hinn lagalegi fyrirvari sem málið var byggt á — það var byggt á lagalegum fyrirvara, hæstv. ráðherra — vil ég bara benda á það að reglugerðir frá Stjórnarráði Íslands sem gefnar eru út af einstökum ráðherrum, gefnar út næstum daglega og fjalla um ýmiss konar mál, hin og þessi smávægileg mál, útfærslu á alls kyns lagaákvæðum, þær eru ekki bara skör lægri heldur miklu meira en það en lög frá Alþingi Íslendinga. Þessi reglugerð fæðist inni í ráðuneytum, færist inn á skrifborð ráðherra þar sem hann undirritar hana og gefur út. Það er reglugerðin.
Og hvað les ég í lagalega fyrirvarann? Hér stendur um ætlun ráðherra að ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins, 100 milljóna manna samfélags, sem gefur út lög í formi reglugerðar á vettvangi Evrópusambandsins — það heitir reglugerð þar en hefur miklu meira vægi en reglugerðir á Íslandi — komi ekki til framkvæmda. Ætlunin er að reglugerð, gefin út úr Stjórnarráði Íslands, rými út ákvæðum reglugerðar sem innleiddar hafa verið í íslenskan rétt með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu sem við erum að ræða hér. Það að halda því fram að þessi reglugerð breyti einhverju er í hæsta máta ofurbjartsýni, herra forseti.