ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það kemur mjög á óvart ef hv. þingmaður hefur ekki orðið var við Norðmennina í norska Miðflokknum og Nei til EU. Ég ætla að lesa eitt af því, þetta hefur komið fram í fjölmiðlum, þeir hafa verið á fundum, m.a. í Heimssýn og annars staðar, að ræða þessi mál. Ég ætla að vísa í Kathrine Kleveland, formann Nei til EU, í viðtali við norska fjölmiðla. Þar segir, með leyfi forseta:
„Það er ekkert leyndarmál að við höfum haft samband við systursamtök okkar á Íslandi í þessu máli. Það er mikil andstaða meðal íslensks almennings við að verða hluti af orkustefnu ESB.“
Þetta er ekkert leyndarmál af hálfu Norðmannanna, enda geta allir flett því upp sem vilja. Það er ekkert mál. Menn geta bara farið á sjálft alnetið og gúglað bæði viðtöl og auglýsingar þar sem þessir aðilar koma fram með sín sjónarmið og fara ekki neitt í felur með það að þeir eru að reyna að hafa áhrif á umræðuna hér á Íslandi. Ekkert að fara í felur með það eins og kemur fram í þessum ummælum.
Það er bara sjálfsagt að hv. þingmaður hafi slíkar túlkanir á fyrirvörunum ef hann vill. En það liggur alveg fyrir að þeir aðilar, virðulegi forseti, sem hv. þingmenn Miðflokksins hafa vitnað hvað helst til í fræðimannahópi vísa alveg sérstaklega til þessa, t.d. í sinni áréttingu. Ég hvet alla hv. þingmenn Miðflokksins til að skoða álitsgerðina alla frá Stefáni Má Stefánssyni og Friðriki Árna Friðrikssyni Hirst — alla — og sömuleiðis áréttingu þeirra vegna umræðunnar vegna þriðja orkupakkans. Þá vísa þeir m.a. í fyrirvarana.