149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Nei, ég hef ekki orðið var við þessa Norðmenn sem hæstv. utanríkisráðherra er svona logandi hræddur við. Ég hef alla vega ekki séð neina sem ég hef einhvern ótta gagnvart, alls ekki. Ég hef ekki séð þá eða heyrt í þeim eða hitt þá, alls ekki. Það að halda því fram að norski Miðflokkurinn hafi einhver sérstök völd innan Miðflokksins íslenska er eitthvað sem ég kannast alls ekki við og vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. ráðherra að hann útskýri nánar hvort það sé. Þetta er hálfhlægilegt.

Varðandi reglugerðina veit ég a.m.k. að einstök ákvæði í reglugerð frá Stjórnarráði Íslands, sama hversu góð sem þau eru og hafa góðan tilgang, í reglugerð sem hæstv. ráðherra í Stjórnarráði Íslands hefur sett, vega ekki neitt í samanburði við reglugerðir Evrópusambandsins sem hafa lagagildi í Evrópusambandinu. Þau vega ekki neitt. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Er þetta hinn lagalegi fyrirvari? Er þetta það sem var kynnt hér með trommuslætti, að það væri óhætt að innleiða orkutilskipun Evrópusambandsins með lagalegum fyrirvara? Er þetta hinn lagalegi fyrirvari í raun og veru? Við höfum fengið fullt af svörum, mýmörg svör um það hvar þennan lagalega fyrirvara sé að finna og ef hæstv. ráðherra er loksins búinn að upplýsa okkur um að þarna sé hann, segi ég: Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús.