149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér þykir ekki gaman að vera boðberi válegra tíðinda, en ég er hræddur um að ráðherrann sé horfinn af vettvangi, þannig að ekki þarf að reikna með frekari svörum en þeim snautlegu sem þegar hafa verið lögð á borð og útúrsnúningum og söguskýringum um uppdiktaða Norðmenn. Þannig fór um sjóferð þá.

En mig langar eiginlega að spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson, og þakka honum fyrir ræðu hans, hvort hann muni eftir jafn lélegum heimtum í svörum ráðherra við fyrirspurnum þennan tíma sem hæstv. utanríkisráðherra stoppaði hér með okkur. Ég lagði fram fyrir hann sennilega fimm spurningar og mér tókst í seinna andsvari að pína út svar við einni. Mér heyrðist heimturnar vera svipaðar hjá öðrum sem lögðu fyrir hann spurningar hér inni þótt ég hafi ekki náð að halda fullkomlega utan um það. En hvað heimtur minna eigin spurninga varðar voru þær ekki merkilegar.

En man hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafandi verið forsætisráðherra, eftir því að fylgjast með fagráðherra sem kemur í sérstaka heimsókn til að ræða umdeilt atriði og svara spurningum, að heimtur svara hafi verið jafn lélegar og það sem við urðum vitni að rétt í þessu?