149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:21]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Auðvitað óttast maður að þetta sé lýsandi fyrir málið í heild þegar þau fáu svör, kannski eina svar sem barst er til þess fallið að ýta frekar undir áhyggjur okkar en að draga úr þeim.

En í samhengi við það sem hv. þingmaður spurði um vakti sérstaka athygli mína þegar hæstv. ráðherra nefndi að það væri alveg í okkar valdi að niðurgreiða kostnað við húshitun, kostnað við orku til húshitunar. Ég gat ekki skilið hæstv ráðherra öðruvísi en svo að hann væri að viðurkenna að verðhækkanir á orku gætu leitt af orkupakkanum, en þá gætu menn bara ákveðið að niðurgreiða orkuna á móti.

Ég efast hins vegar um að almenningur á Íslandi treysti á að ef orkuverð hækkar áfram, eins og það hefur gert við fyrri raforkutilskipanir, þá muni stjórnvöld við innleiðingu á þriðja orkupakkanum standa við það að niðurgreiða orku til húshitunar.

En svo er hin spurningin líka, henni er algerlega ósvarað hvað þetta varðar: Hvað með aðra orku? Hvað með þá orku sem menn nota á heimilum sínum, sem eru þó með hitaveitu en þurfa augljóslega að nota rafmagn líka? Ætlar hæstv. ráðherra að niðurgreiða þann raforkukostnað? Nei, líklega ekki, enda mætti hann það ekki samkvæmt regluverkinu. Það væri ekki hægt að taka ákvörðun um það að niðurgreiða sérstaklega rafmagn á Íslandi til að (Forseti hringir.) mæta verðhækkuninni.