ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég tel mig knúinn til að koma hingað upp og lýsa því yfir að ég er afar undrandi yfir því að hæstv. utanríkisráðherra skuli láta sig hverfa úr þingsal án þess að svara þeim spurningum sem lagðar voru fyrir hann, mikilvægum spurningum. Það eru a.m.k. þrjár spurningar sem ég spurði hæstv. ráðherra sem hann svaraði ekki.
Það eru bara óboðleg vinnubrögð, herra forseti. Hæstv. ráðherra yfirgefur salinn og fer undan í flæmingi. Ástæðan hlýtur að vera sú að þeir hafa vondan málstað að verja. Það er ósköp einfalt.
Ein stór og mikilvæg spurning sem ég spurði hann að varðaði innleiðingu reglugerðar 72/2009, um að það sé óheimilt að niðurgreiða rafmagn til húshitunar: Þetta er núna í núverandi orkupakka sem á að fara að innleiða hér. Hann svarar því að þetta muni ekki verða að veruleika. Hvernig getur hann fullyrt það? Hann verður að skýra mál sitt betur. (Forseti hringir.)
Herra forseti. Það er óboðlegt að ráðherra geti bara hlaupið úr húsi án þess að svara fullkomlega því sem lagt var fyrir hann.