149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:25]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég tel, eins og ég nefndi áðan, að enginn þingmaður, og sannarlega enginn af forsetum Alþingis, eigi jafn góðan möguleika og sá sem nú situr á því að endurheimta hæstv. utanríkisráðherra. Hæstv. forseti kann á honum lagið, að svo miklu leyti og það er yfir höfuð hægt.

Því vil ég hvetja hæstv. forseta til að beita sér nú fyrir því að hæstv. ráðherrann snúi aftur og svari a.m.k. nokkrum spurningum. Þær eru vissulega margar sem hafa vaknað. En það hlýtur að vera að við eigum heimtingu á því, Alþingi — ég er ekki bara tala um okkur þingmenn Miðflokksins — í ljósi þess hvernig umræðan hefur þróast og alls þess sem komið hefur í ljós, að hæstv. ráðherra, sem leggur málið fram, skýri það betur.