149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:26]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég verð að segja það sem skoðun mína í þessu máli, að koma hæstv. utanríkisráðherra hingað var algjör tímasóun. Hann sóaði tíma sínum og okkar.

Auðvitað væri gott ef hægt væri að ná talsambandi við hæstv. utanríkisráðherra og fá hann til að koma hér til þess að reyna að svara einhverju af því sem til hans er beint. Við vorum ekki að kalla eftir ráðherra hingað til að segja einhverjar furðusögur af Norðmönnum. Og við vitum að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hitti David Cameron einu sinni. Við vitum það. En hefur það eitthvað með málefni dagsins að gera, herra forseti? Virkilega? Hefur það eitthvað með það að gera sem við erum að ræða hér í dag? Ég held ekki.

Þannig að ég lýsi furðu minni á þessari framkomu. Það mun koma betur fram í ræðu sem ég mun halda innan tíðar.