149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:27]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég sé að utanríkisráðherra er mættur hingað og fagna því að sjálfsögðu. Ég trúi því varla að hæstv. utanríkisráðherra hafi ætlað að yfirgefa okkur. En það er greinilega einhver misskilningur og því óska ég eftir því að fá að koma í ræðu á eftir þar sem ég óska eftir frekari svörum við fyrirspurnum sem ég lagði fyrir ráðherra.