149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:05]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki til hvers hv. þingmaður er að vísa, að ég hafi viðurkennt að hafa talað við einhverja embættismenn. Þegar kemur að 102. gr. sem aldrei hefur verið notuð, aldrei, og tala um að þetta hafi alltaf verið hugsað þannig — þetta mál er búið að vera í vinnslu í mörg ár og fara í gegnum þinglega meðferð og menn eru búnir að fá þær undanþágur sem þeir báðu um. Í tíð ríkisstjórnar hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var farið fram á ákveðnar undanþágur og þær fengust. Að menn geti þá bara notað þessa 102. gr. án þess að hafa nein sérstök rök fyrir því er nokkuð sem mér fannst augljóst að gæti ekki gengið. Samt sem áður fórum við þá leið að fá álit sérfræðinga, bæði erlendra og innlendra, og það hefur verið kynnt fyrir nefndum þingsins, fyrir þingmönnum öllum og alþjóð. Niðurstaðan er sú sem við þekkjum, ég þarf ekkert að endurtaka hana hér. Hv. þingmaður er mjög meðvitaður um það.