ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, ég spurði einmitt hæstv. ráðherra að þessu í dag og hann svaraði ekki fyrirspurn minni. Ég ítrekaði hana og svarið var þá í formi útúrsnúninga, eins og honum er tamt í þessu máli.
Við höfum þessar yfirlýsingar. EFTA-ríkin gefa frá sér yfirlýsingu, Noregur, Liechtenstein og Ísland, og síðan gefur Evrópusambandið líka frá sér yfirlýsingu. En þó ber að taka eftir því að þau gefa ekki út sameiginlega yfirlýsingu. Þau gefa hana út hvert í sínu lagi, sem er líka athyglisvert. Ef þessi yfirlýsing ætti að hafa eitthvert vægi ættu allir aðilar náttúrlega að vera á þeirri yfirlýsingu. En svo er ekki.
Yfirlýsingin gengur út á það að skilningur sé á stöðu Íslands og þessum fyrirvörum, og þeir væru þá hugsanlega bindandi fyrir þessi stjórnvöld, þ.e. yfirlýsingin ætti væntanlega að vera bindandi fyrir EFTA-ríkin og EFTA bindandi fyrir Evrópusambandið.
En þá komum við að því sem hv. þingmaður nefndi: Hvað með alla þá lögaðila sem byggja rétt sinn á ákvæðum samningsins? Þeir koma hvergi að þessum yfirlýsingum.
Hafa þeir t.d. lýst því yfir að þeir ætli ekki að krefjast þess að íslensk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar samkvæmt orkupakka þrjú? Það hefur hvergi komið fram.
Þarna er bara hrein og klár óvissa.
(Forseti hringir.) Ég spurði utanríkisráðherra út í þetta sérstaklega og það var fátt um svör, því miður, eins og við svo mörgu öðru sem við lögðum fyrir hann í dag.