149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:42]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Forseti. Stórundarleg heimsókn hæstv. utanríkisráðherra hér áðan, eftir að ráðherrann fannst loks, skilaði sér til landsins og svo hingað í þingsal, hefur orðið til að vekja miklu fleiri spurningar en hún svaraði. Hæstv. ráðherra hélt sig reyndar í upphafi fyrst og fremst við gömlu talpunktana sína úr ráðuneytinu, eins og ekkert hefði gerst í millitíðinni, ekkert hefði komið í ljós og engar umræður átt sér stað. Það var greinilegt að ráðherrann hafði ekki fylgst með umræðum um málið. En svo í andsvörum, að því litla leyti sem hann hafði eitthvað til málanna að leggja annað en skæting í garð þess sem spurði hverju sinni, upplýsti hæstv. ráðherrann okkur um að áhyggjur hans af afskiptum Norðmanna — Norðmannasamsæri ráðherrans, sem ég vil kalla svo — gengju jafnvel lengra en hæstv. ráðherra hafði gefið í skyn áður. Ekki var annað að heyra á ráðherranum en að það væru einhverjir Norðmenn í hverju horni að stýra umræðunni á Íslandi. Þar beindi hann helst sjónum sínum að norska Miðflokknum og Nej til EU-samtökunum í Noregi.

Það var sérkennilegt í ljósi þess að þrátt fyrir þennan mikla Noregsáhuga gat ráðherrann engu svarað um meðferð málsins í norska þinginu, um viðhorf norskra stjórnmálaflokka, norsku þjóðarinnar og verkalýðshreyfingarinnar, til málsins. Hann gat heldur engu svarað um atriði sem ég hef gert að umtalsefni og leitað svara við — því að ekki koma þau frá ráðherranum — þ.e. fyrirvarana átta sem norska Stórþingið samþykkti og voru skilyrði þess að tilteknir flokkar og stjórnmálamenn væru reiðubúnir til að hleypa málinu í gegnum norska þingið.

Nú hefur nefnilega komið á daginn að þessir fyrirvarar hafa líklega ekkert hald, og núna, 14 mánuðum eftir að þeir voru samþykktir, hefur ekki enn borist svar frá Evrópusambandinu til staðfestingar á því að þeir hafi gildi; enda er það fordæmalaust að ríki setji einhliða fyrirvara við innleiðingar við EES-samninginn.

En ástæðan fyrir því að ég krafði hæstv. ráðherra svara um þessa fyrirvara sérstaklega, og raunar um ýmislegt fleira sem ekki fengust svör við heldur, er samhengið við hina svokölluðu íslensku fyrirvara. Þar var ekki heldur mikið um svör hjá ráðherranum. Íslensku fyrirvararnir, séu þeir er yfir höfuð til — og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason er enn að leita — eru augljóslega þeim mun lakari en þeir norsku, enda fela þær tilgátur sem nefndar hafa verið um hvar þá sé að finna í sér einhverja minnispunktar úr samtölum stjórnmálamanna eða skoðanir í greinargerð eða eitthvað slíkt.

Það sem ég hefði viljað fá svör við hjá hæstv. ráðherra, og bíð enn eftir að einhver stjórnarliði komi og útskýri fyrir okkur, er hvers vegna við skyldum ætla að þessir óljósu íslensku fyrirvarar, í formi viljayfirlýsingar eða minnispunkta eftir spjall, hafi vægi, hafi gildi, á meðan skýrt afmarkaðir átta fyrirvarar norska Stórþingsins við innleiðinguna virðast ekki hafa neitt gildi.

Það er svo önnur saga, herra forseti, að með því að vísa málinu aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar gæfist Norðmönnum líka tækifæri til að láta á það reyna hvort eitthvert hald sé í fyrirvörum þeirra, hvort þeir geti fengið þá samþykkta sem formleg undanþágu.

En einhverra hluta vegna hefur hæstv. ráðherra lagst alfarið gegn því að málið fari aftur til sameiginlegu nefndarinnar. Þar kemur Noregstenging aftur við sögu.

Ég sé að ég næ ekki að fara yfir þann hluta málsins að sinni en bið forseta að skrá mig aftur á mælendaskrá, sem ég veit að hann hyggst ekki gera fyrr en andsvörum er lokið, en að því búnu skráir hæstv. forseti mig vonandi á mælendaskrá.