149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:47]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti skal verða við því. Það er eingöngu af þeim ástæðum að það er ruglingslegra fyrir þá sem kynnu að vera að fylgjast með mælendaskránni að sjá mann á mælendaskrá sem jafnframt er annar hver ræðumaður í andsvörum.

Forseti vekur líka athygli á því að tveir hv. þingmenn hafa nú í annað skiptið í röð beðið um orðið, um andsvör, og nýti þeir báðar umferðir til fulls tekur það 16 mínútur. Það er mínútu betur en þingsköpin gera ráð fyrir að ráðstafað sé í andsvör, þannig að forseti hefur greinilega misskilið yfirlýsingu formanns þingflokks Miðflokksins í dag.