ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég er enn á svipuðum slóðum vegna þess að ég get viðurkennt að þegar í ljós kom að hæstv. utanríkisráðherra kannaðist ekki við þá umsögn sem Eyjólfur Ármannsson lögfræðingur skilaði utanríkismálanefnd um þriðja orkupakkann, brá mér í fyrsta lagi nokkuð við. En það sem kom mér mjög á óvart við heimsókn ráðherrans hingað var hvað hann virtist vera í raun illa að sér um þetta mál.
Hann kom hingað með sæg aðstoðarmanna en átti engin svör við neinu. Hann virtist ekki vera alveg með á mörgu af því sem við vorum að spyrja hann um.
Þetta olli mér miklum áhyggjum. Ég viðurkenni það reyndar að þegar ég heyrði þetta hjá hæstv. ráðherra kom það mér ekki alveg eins mikið á óvart og áður hversu illa málið er búið. Ef það er virkilega þannig að ráðherrann var ekki betur með á því hvað var að gerast í málinu, þá kemur það mér ekki alveg eins mikið á óvart og áður hvað þetta mál er illa og lítt búið til að vernda hagsmuni Íslands, tel ég.
Það er reyndar ein helsta niðurstaða Eyjólfs Ármannssonar að, eins og stendur á blaðsíðu eitt, með leyfi forseta:
„Alþingi á að hafna þriðja orkupakkanum og tilkynna það sameiginlegu EES-nefndinni. Slík málsmeðferð ógnar ekki EES-samningnum og [er] í fullu samræmi við ákvæði hans.“
Þetta ánýjar lögmaðurinn þegar lengra kemur inn í umsögnina og á blaðsíðu tvö segir, með leyfi forseta:
„Umfjöllun greinargerðar þingsályktunartillögunnar um innleiðingu ESB-gerðanna í landsrétt er rýr en athyglisverð, samanber eftirfarandi: „Verði þessi tillaga samþykkt verður reglugerð (EB) nr. 713/2009 [um Samstarfsstofnunina] innleidd í íslenskan rétt með hefðbundnum hætti en með lagalegum fyrirvara um að grunnvirki sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og orkumarkaðar ESB verði ekki reist eða áætluð nema að undangenginni endurskoðun á lagagrundvelli reglugerðarinnar og komi ákvæði hennar sem varða tengingar yfir landamæri ekki til framkvæmda fyrr en að þeirri endurskoðun lokinni. Þá verði jafnframt tekið enn frekar og sérstaklega til skoðunar á vettvangi Alþingis hvort innleiðing hennar við þær aðstæður samræmist íslenskri stjórnarskrá.““
Þessi ágæti lögfræðingur, Eyjólfur Ármannsson, heldur áfram og segir:
„Hér má sjá að lagafyrirvarinn felur í sér vafasama lögfræðilega loftfimleika og óvissuferð gagnvart eftirfylgni við EES-samninginn en fyrirvarinn á að setja skorður við að með innleiðingu geti Ísland orðið hluti innri orkumarkaðarins. Gerðin felur í sér framsal á fullveldi“ — framsal á fullveldi, herra forseti — „og stjórnskipuleg álitaefni og á Alþingi að krefjast nánari upplýsinga um innleiðinguna.“
Það er einmitt það sem við höfum verið að gera hér allan þennan tíma. Reyndar ekki krefjast. Við höfum bara beðið um þetta mjög kurteislega, en engin svör hafa borist.
Ég bar þá von í brjósti að þegar ráðherra myndi mæta á svæðið fengjum við einhver svör. Ráðherra kom bara til þessarar umræðu á nærbuxunum, svona þekkingarlega séð.
Hér segir enn fremur að lokum hjá þessum ágæta lögfræðingi, með leyfi forseta:
„Af hinum tilvitnuðu orðum má sjá að óljóst er hver hinn nefndi lagalegi fyrirvari er.“
Honum er því eins háttað, þessum ágæta lögfræðingi, og okkur. Hann er að leita að týnda fyrirvaranum, alveg eins og við. Og hann finnur hann ekki heldur.
Ég verð að viðurkenna að þegar ég las þessa umsögn lögmannsins — ég mun fara enn nánar ofan í hana í næstu ræðum, af því að hún er dálítil að vöxtum — féll manni eiginlega allur ketill í eld. Síðan kemur ráðherrann hingað, (Forseti hringir.) snúður á honum, og svarar engu og virðist ekki vita neitt.