ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að leyfa mér að veita andsvar, ef ég gaf ekki nógu skýrt merki um það. Hvað varðar athugasemd hæstv. forseta er það svo sannarlega orðið alveg ljóst það sem af er umræðunni í dag, að það veitir ekki af að einhverjir veiti andsvör til að kryfja það sem hér er verið að ræða því að verulega vantar upp á það, það vantar upp á það að öllu leyti að stjórnarliðarnir sem bera fram málið geri það. Ég vona reyndar að hv. þingmanni, sem ég er að fara að spyrja í þetta skipti, verði að ósk sinni og að hv. formaður utanríkismálanefndar komi og svari hinni mögnuðu ræðu hv. þingmanns, en sá hv. þingmaður virðist hafa meiri áhuga á því að mæta í svokallaða skemmtiþætti í kvöld og hæðast að öðru fólki þar ásamt vinahópi sínum. En vonandi verður breyting þar á. Því að ræða eins og hv. þingmaður flutti hér kallar á spurningar, en hún kallar sérstaklega á svör frá stjórnarliðum.
Ábending hv. þingmanns um dagsetningar, tímasetningar, er að mínu mati lykilatriði í þessu og það hvernig hann hefur leitt það út að það sé að eiga sér stað raunveruleg innleiðing. En það er ákveðið orðalag — því að eins og hv. þingmaður nefndi réttilega vanda menn sig greinilega mjög hvernig þeir orða hlutina — sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í. Það kemur fyrir í greinargerð og væntanlega í þingsályktunartillögunni sjálfri þar sem sagt er að ákvæði sem varða tengi yfir landamæri: komi ekki til framkvæmda. Það er ekki sagt: taki ekki gildi. Það er valið orðalagið: (Forseti hringir.) komi ekki til framkvæmda. Telur hv. þingmaður að það sé skýring á þessu orðavali?