ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mér finnst skylt að taka fram að þegar við gengumst inn á það fyrr í dag að fara sparlega í andsvör var það gert í ákveðinni trú um að við fengjum kannski að vita af því hversu lengi þessi fundur ætti að standa. Það hefur ekkert bólað á slíkum upplýsingum. Við erum aðeins að láta vita af því að okkur finnst kannski að það séu breyttar forsendur frá því sem var í dag þegar við ræddum þetta við forseta. Það væri náttúrlega fengur að því að vita hversu lengi forseti hyggst halda áfram fundi og þá getum við tekið tillit til þess arna eins og við gerðum framan af. Það er heldur ekki launung á því að það urðu okkur mikil vonbrigði hvernig fundurinn með hæstv. ráðherra fór og svona leiðir eitt af öðru.