149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:14]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Fyrst aðeins að orðum forseta áðan, af því að við viljum ekki misnota fundarstjórn forseta, um þá staðreynd að þessi umræða hefur staðið yfir um nokkra hríð. Það kann vel að vera að einhverjum hér inni þyki nóg mælt en ég ætla að upplýsa forseta um að við Miðflokksfólk fáum í sífellu skilaboð frá fólki utan húss og víða að, m.a. frá alþýðusamtökunum og fleirum, um að gefast ekki upp í þeirri baráttu að bæta þetta mál. Við berum skyldur gagnvart fólkinu í landinu sem er að 62 hundraðshlutum á móti þessu máli samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og munum þess vegna halda áfram að berjast fyrir því af öllu afli að bæta þetta mál sem best við getum.

Ég ætlaði að halda allt aðra ræðu en ég fer í núna en það er vegna þess að ég sé að í hliðarsal er hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé sem hefur stundum verið með okkur hér í salnum. Ég hef eiginlega verið að bíða eftir því að hann verði á vettvangi þannig að ég geti átt við hann orðastað. Fyrir ári var tekið mjög gott viðtal við þann ágæta hv. þingmann á RÚV þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af orkupakka þrjú. Hann segir þar að hann vilji að skoðað verði hvort rétt sé að Ísland sé áfram hluti af regluverki Evrópusambandsins um orkumál vegna þess að hann óttist að samevrópska orkumálakerfið geti komið í veg fyrir að hægt verði að nýta orkuauðlindirnar hér til að gera Ísland kolefnishlutlaust fyrir 2040. Það er smáklausa um það að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi gert samþykktir, sem er nú búið að svíkja, en aftur á móti hafi VG ekki gert sérstaka samþykkt.

Nú langar mig að vitna í hv. þm. Kolbein Óttarsson Proppé, með leyfi forseta:

„Sjálfur geri ég marga og mikla fyrirvara við þetta. Ekki endilega bara innihald þessa þriðja orkupakka Evrópusambandsins heldur hvert við stefnum í raun og veru í þessu samevrópska orkukerfi í heild sinni.“

Hann segir að óvissa sé um lagaleg og pólitísk áhrif. Og haft er eftir þessum ágæta hv. þingmanni, með leyfi forseta:

„Hann segir að þingmenn verði að setjast yfir málið. Ekki sé hægt að ætlast til þess að þingið afgreiði það án þess að fara ítarlega yfir það.“

Það er nú akkúrat það sem við höfum verið að reyna að gera, herra forseti. Við höfum unnið að því að fara ítarlega yfir þetta mál, nákvæmlega eins og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé vildi endilega að við gerðum fyrir ári. [Kliður í þingsal.]

Áfram segir:

„Þriðji orkupakkinn var nýverið samþykktur á norska Stórþinginu.“ — Má ég biðja hæstv. forseta um að sjá til þess að skvaldur í hliðarsal trufli mig ekki. — „Þar voru reyndar skiptar skoðanir. Verkalýðshreyfingin var á móti“ — eins og hér —„og systurflokkur VG, Sósíalski vinstriflokkurinn, greiddi atkvæði gegn honum“ — rétt eins og VG var á móti fyrsta og öðrum orkupakka Evrópusambandsins.

En nú hafa Vinstri græn skipt algerlega um gír og eru frumkvöðlar í markaðsvæðingu orkuauðlinda Íslands. Ég hélt að ég myndi ekki lifa þann dag, herra forseti. Síðan segir hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé, með leyfi forseta:

„Þetta mun augljóslega hafa áhrif, sama hvort við samþykkjum eða höfnum. Þess vegna er það mikilvægt, hver sem ákvörðunin verður, að hún sé tekin á faglegum grunni og að gefinn verði tími til að fara yfir hana.“

Eins og talað út úr mínu hjarta, herra forseti. Og þetta er einmitt það sem við höfum verið að kappkosta, flokksfólk Miðflokksins, í þessari umræðu, að uppfylla óskir hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés um að þetta þingmál fái eins góða meðferð og vandaða og hugsast getur. Við hyggjumst gera það áfram og ég vænti þess að hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé virði það við okkur að við erum að uppfylla óskir hans í þessu efni, að ekki sé hlaupið að neinu heldur farið mjög gaumgæfilega í gegnum þetta mál sem er gríðarstórt, eins og hann benti réttilega á fyrir ári. (Forseti hringir.) En best hefði mér þótt ef hann hefði komið hér í viðtal við mig um þetta mál.