149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:33]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta mál er eins og það er vaxið og það er vissulega svo að hér hefur farið drjúgur tími í þessa umræðu. En ég tel að það kristallist hér enn og aftur að þeim tíma hefur verið vel varið.

Herra forseti. Varla viljum við, hið háa Alþingi, gera rangt ef við vitum hvað er rétt. Maður getur ekki álasað mönnum fyrir að gera mistök ef þeir vita ekki betur. Það er ekki hægt, og ég dæmi engan fyrir að gera mistök vegna þess að það var af vangá eða af því að menn vita ekki betur en að þeir séu að gera rétt.

Hitt er öllu alvarlegra, herra forseti, ef menn breyta rangt af ásetningi og gegn betri vitund, vegna þess að hér undir eru samkvæmt þingsályktunartillögunni auðlindir Íslands og yfirráð yfir henni og er sérstaklega vitnað í 21. gr. stjórnarskrá Íslands, sem eru lög nr. 33/1944. Það er af góðri ástæðu. Þetta varðar auðlindirnar. Þetta varðar stjórnarskrána. Það kemur fram í þingsályktunartillögunni. Við skulum umgangast þá ákvörðun sem verið er að biðja um að sé tekin hér, miðað við þær forsendur.