ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Fyrr í kvöld fengum við heimsókn frá hæstv. utanríkisráðherra. Við höfðum lengi kallað eftir því að hæstv. ráðherrann svaraði fyrir eitthvað af þeim fjölmörgu atriðum, og helst öll, sem upp hafa komið í þessari umræðu. Við urðum því fyrir talsverðum vonbrigðum þegar hæstv. ráðherra flutti, þann tíma sem hann staldraði hér við, annars vegar gömlu talpunktana sína úr ráðuneytinu og svaraði svo þeim sem spurðu hann spurninga, með nánast eintómum skætingi.
Ég hefði haldið að þegar hæstv. utanríkisráðherra, maðurinn sem lagði fram þessa tillögu, fannst loksins og kom til landsins, gerði umræðunni betri skil en raun bar vitni. Sérstaklega fannst mér þetta einkennilegt í ljósi þess að þessi sami hæstv. ráðherra saknaði mín mjög þegar ég brá mér af landi brott í opinberum erindagjörðum, ásamt reyndar hv. formanni utanríkismálanefndar Alþingis. Hann virtist ekki sakna formanns nefndarinnar eins mikið en saknaði mín mjög. Þó var hér gríðarlega öflugur varamaður á þinginu fyrir mig á þeim tíma, Þorgrímur Sigmundsson.
Þegar við höfðum saknað hæstv. ráðherra dögum og nóttum saman var ég farinn að trúa því að hann myndi sýna þinginu þá virðingu að svara fyrir þau fjölmörgu atriði sem komið hafa upp í þessari umræðu. En nei, það var ekki. Hann hélt reyndar áfram með kenningu sína um að andstaðan við þriðja orkupakkann væri samsæri, runnin undan rótum einhverra Norðmanna, og svo endurflutti hann gamlar sögur eða bloggfærslur Björns Bjarnasonar um áhuga á lagningu sæstrengs og vildi meina að ég hefði haft einhvern áhuga á slíku, sem hann gat náttúrlega ekki bent á að væri á nokkurn hátt rétt.
En það um það. Eitt af því sem reynt var að spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í var sú stóra grundvallarspurning hvers vegna ríkisstjórnin væri ekki tilbúin til þess að nýta þau ákvæði sem eru í EES-samningnum sjálfum til að setja málið í þessa svokölluðu sáttameðferð. Samningurinn gerir ráð fyrir að ef rísi ágreiningur eða séu álitamál sem eru þess eðlis að ríkin telji að á sig sé hallað sé hægt að senda mál aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar og leysa úr þeim þar á þann hátt að allir megi vel við una.
Ég hefði talið að þetta væri ákvæði sem nýta ætti við þessar aðstæður og hefði kannski mátt nýta fyrr, hefði kannski mátt nýta í öðrum álitamálum. En með því að halda því fram að það að nýta þetta ákvæði kalli fram einhvers konar upplausnarástand, jafnvel setji EES-samninginn í hættu, er verið að veikja ákvæðið og þar með veikja samninginn og möguleika okkar á að nýta það sem er svo jákvætt við hann, þessa sáttaleið, við úrlausn framtíðarviðfangsefna.
Það eina sem hæstv. ráðherra nefndi hvað þetta varðaði var álit Carls Baudenbachers, sem kom til, vel að merkja, eftir að ríkisstjórnin var búin að ákveða að senda málið ekki til sameiginlegu EES-nefndarinnar heldur fara lakari leið. Hægt er að álykta sem svo að það hafi verið svokölluð eftiráskýring frekar en frumskýringin á ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
En hvað sagði prófessor dr. Baudenbacher? Jú, hann talaði um að Íslendingum bæri að sýna Norðmönnum hollustu, enda litu Norðmenn svo á að Íslendingar væru með nokkurs konar aukaaðild að samningnum. En hann sagði líka, og því var sleppt í samantekt ríkisstjórnarinnar, að það að vísa málinu aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar myndi ekki valda neinum skaða. En einhverra hluta vegna kaus hæstv. ráðherra að líta fram hjá þeirri sjálfsögðu staðhæfingu Carls Baudenbachers en reyndi þess í stað að stilla áliti hans upp sem hræðsluáróðri, og tók þá væntanlega að taka undir það að Íslendingum bæri að sýna Norðmönnum hollustu, enda teldu þeir Íslendinga fylgifiska.