ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þar sem ég veit að hv. þingmaður hefur unnið náið með Carl Baudenbacher og þekkir vel til hans ætla ég ekki að efast um að ég gæti aðhyllst þessa kenningu. Það eru ákveðin skapgerðareinkenni í þjóðinni sem kristallast aftur og aftur við ákveðnar aðstæður, eins og það gerir hjá okkur sem einstaklingum líka.
Varðandi álitsgerð Carls Baudenbachers þá var hann einmitt ráðgjafi Íslands í sameiginlegu EES-nefndinni þegar að ákvörðun þessari var unnið. Það kemur fram í álitsgerð hans.
Það vekur athygli að það sem hann ráðleggur sem lögfræðilega og mögulega aðferð til að fara eftir er ekki dregið fram í áliti sem gert er í samantekt og látið fylgja, ásamt reyndar stóra álitinu. En af því að við erum þannig gerð teljum við náttúrlega að samantektin innihaldi allt sem máli skiptir.
En það sem meginmáli skiptir í áliti Carls Baudenbachers er að hann tekur sérstaklega fram að þeir sem eru í andstöðu við innleiðingu orkupakkans, og ef Ísland meti það svo, sé það fær leið að fara aftur fyrir sameiginlegu EES-nefndina og reyna að semja um nýja eða aðra aðlögun, einkum með tilliti til reglugerðar 713, og reyndar orkupakkans í heild. Hann lýkur þeirri niðurstöðu sinni á orðunum, á ensku, með leyfi hæstv. forseta:
„That will do no harm.“
Eða: Það yrði að meinalausu.