149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:53]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Mig langaði til að ræða við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson og þakka honum fyrir ræðu hans. Ég ætlaði að ræða við hann um stjórnskipulegan fyrirvara sem við Íslendingar settum fyrir sameiginlegu EES-nefndinni þegar ákveðið var að freista þess að innleiða orkutilskipunina og allt sem henni fylgir, í íslenskan rétt.

Margir, og þá sérstaklega stjórnarþingmenn, hafa talið það óráð og hafnað því ítrekað að senda málið aftur til meðferðar hjá sameiginlegu EES-nefndinni. Þess vegna vil ég ræða betur þann fyrirvara sem við settum sem þjóð þegar við samþykktum að stefna að innleiðingu pakkans.

Í tilefni af því hiki sem á menn kemur þegar þetta er nefnt — eða má kannski kalla það ótta? — er á það að benda að Alþingi lítur svo á að í því að nota hinn stjórnskipulega fyrirvara og hafna málinu og eftirfarandi meðferð þess, sem er vörðuð í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið í 103. og 102. gr., og hefja þar með málsmeðferð fyrir sameiginlegu EES-nefndinni, felist uppsögn EES-samningsins. Og að sú leið sé ekki fær.

Ef þetta er viðhorfið er Alþingi þar með að viðurkenna, ég spyr hvort hv. þingmaður sé sammála mér í því, að stjórnskipulegi fyrirvarinn sem við settum hafi enga þýðingu í raun og veru. Til hvers er hann settur ef menn eru, með þessum viðbrögðum, í raun og veru að viðurkenna að hann hafi enga þýðingu?