ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég ætla að halda aðeins áfram þar sem frá var horfið við leitina lagalega fyrirvaranum. Ég átti örlítið eftir til að klára þá yfirferð mína. Ég var kominn að reglugerð eða drögum að reglugerð sem ætlunin er að gefa út af hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Bent hefur verið á það, og hæstv. utanríkisráðherra neitaði því ekki hér fyrr í dag, að lagalega fyrirvarann væri að finna í þeirri reglugerð. Hann neitaði því ekki svo að ég ætla að gera örlítið rannsókn á því hvort þessi lagalegi fyrirvari, ef þetta er hann, standist. Hvort hann hafi eitthvert gildi í þessu máli.
Málið er að við erum að innleiða hér orkutilskipun Evrópusambandsins, þá þriðju í röðinni. Ef gerður er lagalegur fyrirvari með reglugerð útgefinni af ráðherra … Ég er með drög að henni og ég var búinn að lesa úr 3. gr. Ég ætla að lesa hluta af henni aftur, með leyfi forseta:
„Þar sem íslenska raforkukerfið er ekki tengt raforkukerfi annars lands, með grunnvirkjum yfir landamæri, koma ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 sem varða raforkutengingar milli landa ekki til framkvæmda á Íslandi …“
Sem þýðir að Evróputilskipunin og reglugerðin kemur ekki til framkvæmda á Íslandi á meðan slíkri tengingu hefur ekki verið komið á. Verið er að segja að reglugerðin gildi ekki.
„Grunnvirki sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og orkumarkaðar ESB verða ekki reist nema að undangengnu samþykki Alþingis …“ — Þetta höfum við nú heyrt áður. — „… og endurskoðun á stjórnskipulegum lagagrundvelli reglugerðarinnar.“
Endurskoðun á stjórnskipulegum grundvelli reglugerðirnar? Það getur varla verið að átt sé við þessa reglugerð, hún er einfaldlega gefin út uppi í ráðuneyti. Hún er samin í einhverjum herbergjum þar og síðan labba menn inn til ráðherra og hann skrifar undir hana og gefur hana út eins og hverja aðra reglugerð sem eru gefnar út í miklum massavís í ráðuneytinu. Næstum daglega, held ég, koma út nýjar reglugerðir um hvaðeina, hundahald og eitt og annað.
Þetta er léttvæga tegundin af stjórnvaldsfyrirmælum, reglugerðir á Íslandi. Lögin eru miklu meira virði eða hærra sett, ef maður getur notað það orð, vegna þess að þau fara í gegnum ákveðið ferli hérna á Alþingi, í gegnum þrjár umræður, eru samþykktar, forseti skrifar undir og þá eru það lög í landinu. Þessar reglugerðir hafa miklu minna vægi. Þær eru bara skoðaðar í ráðuneytinu, hugsanlega lagðar fyrir ríkisstjórn, ef vægi þeirra er nógu mikið til þess, og síðan skrifar ráðherra undir. Reglugerðin er gefin út. Þá tekur hún gildi. Hún gildir um það efni sem hún á við, sem er oft smærri útfærslur á einhverjum atriðum sem lög kveða á um.
Það getur bara ekki verið, herra forseti, að þessi reglugerð innihaldi þennan lagalega fyrirvara. Í fyrsta lagi eru þetta ekki lög, þetta er reglugerð. Henni verður breytt bara með einu pennastriki uppi í ráðuneyti. Það getur varla verið, og ég neita að trúa því, að þetta sé hinn eini sanni lagalegi fyrirvari, þó að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki svarað spurningu minni hvað það varðar hvort þeir væru búnir að finna hann þarna.
Rétt áður en ég lýk þessu ætla ég að klára að fjalla um orðalag í nefndarálitinu sem hæstv. ráðherra benti á. Ég var búinn að lesa það og ætla ekki að endurtaka það. Þar er talað um að grunnvirkin verði ekki reist eða áætluð nema að undangenginni endurskoðun á lagagrundvelli reglugerðarinnar og ákvæðum hennar sem varða tengingar á milli landamæra.
Þegar þar að kemur, þegar reynir á, á að endurskoða reglugerðina. Reglugerðin er sett úti í Evrópu. Hún sett í Evrópuráðinu og þinginu. Síðan fer hún í EES-nefndina og er samþykkt þar og innleidd með öllu og það tekur jafnvel áraraðir að innleiða hana. Þannig að ég trúi því ekki að menn ætli sér síðar meir að endurskoða þessa reglugerð einhvers staðar uppi á Íslandi. Ég trúi því ekki.
Ætla menn að fresta því að spyrja hvort þessi reglugerð sé í andstöðu við stjórnarskrá, sem lögfræðilegir ráðunautar ríkisstjórnarinnar hafa nú reyndar haldið fram að mikill vafi leiki á?
Ég mun halda áfram í næstu ræðu.